Miðvikudagurinn 25. maí 2022

London: Mótmælendur vilja Hróa Hattar-skatt á banka


27. mars 2011 klukkan 07:47

Ed Miliband

Talið er að um 250 þúsund manns hafi gengið um götur Lundúnaborgar í gær til þess að mótamæla niðurskurði á opinberum útgjöldum. Mótmælendur telja, að ríkisstjórn Íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins gangi of langt í niðurskurði. Sagt er að þetta séu fjölmennustu opinber mótmæli í Bretlandi frá árinu 2003, þegar mótmæli voru víðtæk vegna innrásar Breta og Bandaríkjamanna í Írak. Samkvæmt áætlunum brezkra stjórnvalda er gert ráð fyrir að opinberum störfum fækki um 330 þúsund fram til ársins 2015.

Ed Miliband, hinn nýi leiðtogi brezka Verkamannaflokksins talaði yfir mótmælendum og líkti mómælunum við baráttuna fyrir mannréttindum blökkumanna í Bandaríkjunum og gegn aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afríku.

Fram að þessu hefur ríkisstjórn Camerons komið í framkvæmd 9 milljarða niðurskurði. Frá og með 1. apríl n.k. kemur niðurskurður upp á 41 milljarð sterlingspunda til viðbótar til framkvæmda. Það veldur almennum borgurum í Bretlandi erfiðleikum að til viðbótar við niðurskurðinn er verðbólga vaxandi í Bretlandi og er nú komin í 4,4%.

Talið er að mótmælin eigi eftir að verða erfið fyrir Frjálslynda flokkinn í ríkisstjórn.

Eitt af því, sem mótmælendur vilja er að settur verði eins konar Hróa Hattar skattur á bankana.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS