Laugardagurinn 28. maí 2022

Írar breyti skattagrunni gegn vaxta­lækkun


8. maí 2011 klukkan 07:28

Evrópusambandið mun fallast á kröfu Íra um lækkun vaxta á björgunarláni því, sem Írland fékk fyrir nokkrum mánuðum. Þetta kemur fram á BBC, sem hins vegar hefur ekki upplýsingar um hvað lækkunin verður mikil né hvað kemur í staðinn af hálfu Íra. Angela Merkel hefur sagt að Írar verði að leggja eitthvað á móti til þess að fá vaxtalækkun.

ESB hefur krafizt þess, að Írlandi hækki skatta á fyrirtækjum, sem nú er 12,5%. Írar hafa neitað því. BBC segir að nú sé rætt um að láta þá prósentu vera óhreyfða en breyta hins vegar skattagrunninum sjálfum. Þannig nái prósentan einungis til þeirra tekna, sem fyrirtæki afli á Írlandi en ekki í öðrum Evrópulöndum. Sum af stærstu fyrirtækjum heims eru með höfuðstöðvar sínar á Írlandi. Þar má m.a. nefna Microsoft, Intel, Google og Facebook.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS