Cecilia Malmström, innanríkismálastjóri ESB, hefur kynnt nýjar tillögur um að komið verði á fót sameiginlegu kerfi um afgreiðslu á hælisbeiðnum innan ESB/Schengen-svæðisins. Malström segir að hælisleitendur eigi að búa við sömu formreglur hvar sem þeir leita sér hælis á svæðinu.
„ESB verður að starfa í samræmi við eigin gildi og veita þeim vernd sem koma hingað til að leita skjóls undan ofsóknum og átökum,“ sagði Cecilia Malström í yfirlýsingu miðvikudaginn 1. júní. Hún vill að ESB standi við skuldbindingu sína um að koma á samræmdu kerfi um meðferð hælismála árið 2012.
Í tillögum Malströms er stefnt að því að afgreiðslu á máli hælisleitanda verði lokið á sex mánuðum og að settar verði miðlægar reglur um hvernig farið skuli með þá sem leita hælis á meðan mál þeirra eru til afgreiðslu.
Unnið hefur verið að endurskoðun reglna ESB á þessu sviði síðan 2008. Tillögurnar sem kynntar voru miðvikudaginn 1. júní eru samdar eftir samráð milli áhrifamanna innan ESB og frjálsra félagasamtaka. Ætlunin er að ræða þær á fundi innanríkisráðherra ESB/Schengen-ríkja 9. júní.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.