Króatíski rithöfundurinn Slavenka Drakulic, sem leitast við að sýna fram á í bókum sínum að við getum öll orðið skrímsli, sem drepi og nauðgi ef við höfum völd til þess, sagði við þingmenn á Evrópuþinginu, að handtaka Ratko Mladic mundi ekki duga til að koma á sáttum á Balkanskaga. Atburðirnir þar hefðu ekki orðið til í grasrótinni heldur vegna vísvitandi ákvörðunar stjórnmálaleiðtoga á þessu svæði um að æsa upp þjóðernisöfga. Enn ættu þeir, sem borið hefðu ábyrgð á stjórn þessara ríkja á sínum tíma eftir að játa sök sína.
Slavenka Drakulic segir að fólkið á Balkanskaga lifi í Orwellskri veröld, þar sem talað sé tungum tveim. Annars vegar sé talað friðsamlega við Evrópusambandið, hins vegar sé talað í þjóðernisöfgakenndum tón heima fyrir. Hún kveðst vona að ESB takist að halda friðinn og alla vega að kveða niður þjóðernisöfgar.
Rithöfundurinn segir að rannsókn á æsku og uppruna stríðsglæpamanna leiði í ljós, að þeir séu fólk eins og „ég og þú“. Í umhverfi þeirra og fjölskyldulífi sé ekkert sérstakt að finna, sem skýri gerðir þeirra.
Hún bendir á að í eina tíð hafi Jorgen Haider, hinn austurríski stjórnmálamaður, sem nú er látinn, haft sérstöðu í Evrópu. Nú megi finna í öllum Evrópuríkjum sambærilega stjórnmálaflokka.
Evrópa er í vandræðum sagði Slavenka Drakulic. Frá þessu er sagt á euobserver.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.