Sunnudagurinn 29. maí 2022

Brezk skýrsla: Náttúran er milljarða virði


6. júní 2011 klukkan 08:39

Náttúran er virði milljarða sterlingspunda fyrir Bretland, segir í nýrri skýrslu, sem BBC segir frá. Stofnun, sem heitie National Ecosystem Assessment (NEA) segir að í langan tíma hafi áherzlan verið á að framleiða meiri matvæli og annan varning, sem hafi haft skaðsamleg áhrif á náttúruna en í henni liggi falin auðæfi. Í skýrslunni kemur fram að um 30% af vistkerfi heimsins, sem fólk byggir á séu í hættu en um 20% í batnandi stöðu.

Á stríðsárunum hafi Bretar lagt áherzlu á aukna eigin framleiðslu á matvælum og öðrum vörum eins og timbri. Það hafi gengið vel en leitt til þess að nú sé minna skóglendi á Englandi en annars staðar í Evrópu og gengið hafi verið á fiskistofna. Eitt af vandamálunum sé að eingöngu efnisleg verðmæti séu verðlögð. Með því að leggja mat á önnur verðmæti sem ekki eru eins áþreifanleg, svo sem hreint loft, hreint vatn og flóðavarnir sé hægt að ná meira jafnvægi í verðmætamat.

Hið konunglega fuglaverndarfélag hefur fagnað þessari skýrslu og bent á að hingað til hafi hagvöxtur verið skoðaður í ljósi vergrar landsframleiðslu en máli skipti að taka tillit til raunverulegra verðmæta náttúrunnar.

Einn höfunda skýrslunnar segir ekki hægt að setja einhverja ákveðna tölu á verðmæti náttúrunnar. Án hennar værum við öll dauð svo að verðmæti hennar sé óendanlegt. Það sem máli skipti sé stefnubreyting. Græn svæði séu t.d. gífurlega verðmæt. Þau hafi áhrif á verðmæti húsa og andlega heilsu fólks.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS