Sunnudagurinn 29. maí 2022

Austurríki: 70% landsmanna telur hag sínum ekki vel borgið innan ESB


6. júní 2011 klukkan 13:36

Rúmlega 70% Austurríkismanna telja að hagsmuna þeirra sé ekki vel gætt innan Evrópusambandsins. Þá segjast 39% vilja leggja meira að sér fyrir ESB og samruna Evrópu. Aðeins 22% trúa að meiri hagur sé fyrir Austurríkismenn að vera í ESB en standa fyrir utan sambandið. Færri eða 19% segjast telja sig verða meiri og meiri Evrópumenn.

Þessi niðurstaða í könnun IMAS í Austurríki birtist í blaðinu Krone 6. júní. Blaðið segir að þessi afstaða til ESB endurspegli andstöðu almennings við þá ákvörðun stjórnvalda að styðja við ríki í skuldavanda eins og Grikkland. Þá er afstaðan til kjarnorkuvera einnig talin ráða niðurstöðunni og loks straumur hælisleitenda frá Afríku og Litlu-Asíu.

Andreas Kirschhofer, sérfræðingur hjá IMAS, segir við Krone að í niðurstöðunni birtist sú afstaða almennings í Austurríki að hann telji sig ekki eiga neina samleið með ESB heldur hið gagnstæða.

Þegar Austurríkismenn greiddu fyrir 17 árum atkvæði aðild að ESB töldu 59% að með henni yrði hagur sinn og þjóðar sinnar betri en áður en 22% voru á öndverðum meiði. Nokkrum árum síðar var annað hljóð komið í strokkinn, því að árið 1999 þótti 63% Austurríkismanna að þeir „þyrftu um of að dansa eftir flautu valdsmanna í Brussel“.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS