Eitaraðar baunaspírur eru líklega undirrót E.coli-faraldurins í norðurhluta Þýskalands sem hefur orðið 31 að aldurtila síðan í maí. Tæplega 3.000 manns líggja veikir vegna matareitrunar.
Þýskir embættismenn tilkynntu föstudaginn 10. júní að hið banvæna 0104 afbrigði hefði fundir í baunabúnti frá lífrænum búgarði í héraðinu Bienenbüttel í Neðra-Saxlandi. Neytendaverndarstofnun í nágrannalandinu Nordrhein-Westfalen kynnti niðurstöðu rannsókna sem sýni þetta.
Rannsóknir höfðu áður leitt lækna að þeirri niðurstöðu að baunaspírur væru undirrót veikinnnar. Þeir sem höfðu borðað slíkar spírur voru níu sinnum líklegri til að hafa blóð í saur en þeir sem höfðu ekki gert það. Smitsjúkdómastofnun Þýskalands segir almenningi að hættulaust sé að borða agúrkur, kál og tómata. Enn er varað við baunaspírum.
Grænmetisframleiðendur í Evrópu hafa tapað milljónum evra vegna viðvarana um hættur af framleiðslu þeirra. Þessar viðvaranir reyndust síðan vera rangar. Fyrir nokkrum dögum bauðs ESB til að greiða bændum 210 milljónir evra í bætur.
Rússar tilkynntu 10. júní að þeir myndu falla frá banni við innflutningi á grænmeti frá ESB-löndum, þótt þeir segðu ekki hvenær það yrði gert.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.