Miðvikudagurinn 25. maí 2022

Áformin um danska toll­eftirlitið borin undir þing í næstu viku


10. júní 2011 klukkan 22:11

Ákvörðun dönsku ríkisstjórnarinnar um að koma á stöðugri tollgæslu við landamæri Danmerkur var ekki tekin föstudaginn 10. júní eins og vænst hafði verið. Talið var að fjárlaganefnd þingsins mundi komast að niðurstöðu sem dygði til að ekki þyrfti að fara með málið fyrir þingið sjálft. Minnihluti vinstri flokkanna lagði hins vegar fram tillögu í nefndinni sem leiðir til þess að það fer fyrir þingið.

EUobserver

Claus Hjort Fredriksen fjármálaráðherra telur að tillagan kunni að sæta gagnrýni og hljóta andstöðu þegar það verður tekið fyrir í 179 manna þinginu. „Nú verðum við að skýra hvað felst í tillögunum,“sagði hann en þær hafa sætt mikilli gagnrýni í Brussel og meðal samaðildarlanda Danmerkur að Schengen-samstarfinu um landamæralausa Evrópu.

Ritzau-fréttastofan sagði frá því tveimur tímum eftir að fjárlaganefndarfundinum lauk að ríkisstjórninni hefði tekist að tryggja sér 90 atkvæði og þar með meirihluta meðal þingmanna við atkvæðagreiðslu í næstu viku.

Ríkisstjórnin leggur sig nú fram af meiri þunga en áður við að skýra afstöðu sína inn á við og gagnvart öðrum þjóðum: „Við ætlum að halda okkur að öllu leyti innan Schengen-reglna, Danir hafa mikla trú á opnum landamærum. Við höfum aðeins tollgæslu í huga, aðeins tollgæslu,“ sagði Lene Espersen utanríkisráðherra við AFP-fréttastofuna að loknum blaðamannafundi. „Við ætlum að stöðva innflutning á ólöglegum varningi eins og fíkniefni og vopn.“

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS