Miðvikudagurinn 25. maí 2022

Guttenberg flytur úr landi


12. júní 2011 klukkan 06:59

Karl-Theodor zu Guttenberg

Karl-Theodor zu Guttenberg, fyrrverandi varnarmálaráðherra Þýzkalands, sem sagði af sér embætti fyrir rúmum þremur mánuðum vegna ásakana um ritstuld í tengslum við doktorsritgerð ætlar að flytja úr landi með fjölskyldu sína í a.m.k. tvö ár skv. frétt í Der Spiegel. Guttenberg hefur ekki sést opinberlega frá því hann sagðu af sér en hann var í kjölfar rannsóknar háskólans, sem hann skrifaði doktorsritgerðina við sviptur nafnbótinni.

Spiegel segir að Guttenberg hafi haft samband við vini sína í gegnum tölvupóst en hyggist flytja til London eða Bandaríkjanna. Sumir telja að hann muni frekar flytja vestur um haf, þar sem hann eigi marga viðmælendur. Þá séu Bandaríkin eftirsóttur áfangastaður fyrir þýzka áhrifamenn, sem lenda í vandræðum. Þar er nefndur til sögunnar Cem Özdemir, einn af forystumönnum Græningja, sem varð það á að nota ferðapunkta, sem hann safnaði í ferðum á vegum opinberra aðila í einkaþágu. Hann flutti líka úr landi.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS