Meira en 2000 mótmælendur hafa reynt að loka aðgönguleiðir að þingi Katalóníu í Barcelona á Spáni til að mótmæla niðurskurði á fjárveitingum innan héraðsins. Þingmenn og ráðherrar voru fluttir í þyrlum til fundar í þinghúsinu.
Artur Mas, forsætisráðherra Katalóníu, var meðal nokkurra embættismanna sem komu til þings í lögregluþyrlu vegna mótmælanna. Spænskir fjölmiðlar segja að lögregla hafi myndað varnarmúr umhverfis garð við þinghúsið.
Gerður var aðsúgur að nokkrum þingmönnum á leið til þinghússins, Umræður um fjárlögin töfðust og aðeins helmingur þingmanna sat fundinn.
Efnt var til mótmælanna á sama tíma og svipaðir atburðir gerðust við þinghúsið í Aþenu, þegar grískir þingmenn ræddu um niðurskurð þar.
BBC segir að grískir aðgerðasinnar hafi farið að fordæmi Spánverja við mótmæli sín. Á Spáni sé efnt til aðgerða undir mótmælafána úr spánska borgarastríðinu með áletruninni: „No pasaran“ (þeir skulu ekki sækja fram), ásamt grískum og spænskum fánum. Hið sama er sagt í Grikklandi og á Spáni þar sem ungt fólk hrópar slagorð um spillingu ráðandi afla í stjórnmálum sem reyni sjálf að komast undan niðurskurði.
AFP-fréttastofan segir að stefnt sé að því að skera opinber útgjöld í Katalóníu niður um 10%, þar á meðal til velferðarmála.
Dagblaðið El Pais segir að þyrlur hafi farið átta ferðir með um 25 þingmenn og embættismenn mið-hægri ríkisstjórnar Katalóníu til þinghússins í Barcelona.
Heimild: BBC
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.