Sunnudagurinn 29. maí 2022

Vaxandi erfiðleikar í samstarfi CDU og FDP


16. júní 2011 klukkan 09:23

Angela Merkel ávarpar þýsku þjóðina á gamlársdag.

Vaxandi erfiðleikar eru í samstarfi Kristilegra demókrata og Frjálsra demókrata í þýzku ríkisstjórninni og umtal í báðum flokkum um að samstarfið kunni að fara út um þúfur. Frá þessu segir þýzka tímaritið Der Spiegel í dag og segir að andrúmloftið innan ríkisstjórnar Angelu Merkel sé ömurlegt. Ný kynslóð hefur tekið við forystu Frjálsra demókrata og forysta CDU líti á þá sem léttvigtarmenn í pólitík og fari ekki dult með þá skoðun.

Nýr leiðtogi FDP, Philipp Rösler, telur að Schauble, fjármálaráðherra, tali niður til sín og embættismenn í fjármálaráðuneytinu segja að það sé einmitt það sem Schauble geri og vísi til leiðtoga FDP sem „þessi ungi maður“. Heimildarmenn segja Spiegel að Schauble sé alveg sama þótt FDP yfirgefi ríkisstjórnina og vilji gjarnan sitja áfram í minnihlutastjórn CDU/CSU.

Spiegel segir að það sé markmið áhrifamanna í CDU að flæma FDP úr ríkisstjórninni en innan Frjálsra demókrata sé ágreiningur um málið. Sumir vilja halda áfram og starfa með Schauble. Aðrir vilji hætta. Reiði FDP beinist fyrst og fremst að fjármálaráðherranum.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS