Herman van Rompuy, forseti ráðherraráðs Evrópusambandsins er í heimsókn á Írlandi. Hann hefur gefið til kynna stuðning við kröfur Íra um lækkun vaxta á björgunarláni til þeirra en varar þá við að grípa til einhliða aðgerða til þess að láta helztu eigendur skuldabréfa, sem Anglo Irish Bank hefur gefið út axla töp vegna þeirra án þess að hafa samráð um það við „alþjóðlega samstarfsmenn“ þeirra. Þetta kemur fram í Irish Times í dag.
Hins vegar hefur van Rompuy ekki útilokað að láta eigendur ótryggðra skuldabréfa Anglo Irish og Irish Nationwide bankanna „brenna“ eins og það er orðað í umræðum á Írlandi.
Edna Kenny segir, að írska ríkisstjórnin geri sér grein fyrir að hún geti ekki tekið einhliða ákvörðun um að „brenna“ skuldabréfaeigendur en muni ræða það mál við Seðlabanka Evrópu í haust. Michael Noonan, fjármálaráðherra Írlands hefur sett fram hugmynd um að gera upp á milli eigenda skuldabréfa írsku bankanna, og er sú mismunun sennilega tengd mismunandi tryggingum á bak við bréfin.
Þjóðverjar hafa gefið eftir kröfur sínar um það að eigendur skuldabréfa grísku bankanna verði látnir axla töp með þvinguðum aðgerðum og leggja nú áherzlu á að þeir geri það af fúsum og frjálsum vilja.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.