Miðvikudagurinn 25. maí 2022

Ný skýrsla: Evrukrísan mesta ógnin við efnahagslíf Bretlands


25. júní 2011 klukkan 08:32

Krísan í Evrulandi er mesta og alvarlegasta ógnunin við efnahagslíf Breta segir í nýrri skýrslu Financial Policy Committee í Bretlandi, sem Sir Mervyn King á sæti í svo og Turner lávarður formaður stjórnar brezka fjármálaeftirlitsins og Hector Sants, forstjóri þess. Í skýrslunni kemur fram, að brezkum bönkum stafi hætta af krísunni í evrulöndum, jafnvel þótt þeir hafi ekki lánað mikið til þeirra. Reynslan hafi sýnt að smitunaráhrifin geti breiðst út og alveg sérstaklega þegar nákvæmar upplýsingar liggi ekki fyrir um hvar áhættan liggi.

Sir Mervyn segir í samtali við Daily Telegraph í dag:

„Brezkur banki getur hafa lánað banka, sem hefur lánað öðrum banka, sem er í mikilli áhættu.“

Í skýrslu nefndarinnar kemur fram, að hætta sé á að kreppan í Grikklandi geti valdið tjóni í Frakklandi og í Þýzkalandi, sem aftur geti haft áhrif, sem valdi vandkvæðum í brezka fjármálakerfinu. Þótt brezkir bankar hafi lánað lítið til Grikklands hafa þeir lánað mikið til Frakklands og Þýzkalands og mikið af því fé hafi farið til banka, sem séu meðal stærstu lánardrottna Grikkja og annarra þjóða á evrusvæðinu, sem hafi lent í vandræðum.

Sir Mervyn segir í fyrrnefndu viðtali, að óvissan um hvar áhættan liggi sé verst. Þess vegna mun brezka fjármálaeftirlitið safna saman upplýsingum um stærstu skuldunauta brezkra banka. Þeir bankar hafa verið að draga úr skuldbindingum sínum til banka í Evrulandi og sú þróun mun að óbreyttu halda áfram.

Seðlabankastjórar og aðrir áhrifamenn í fjármálaheiminum koma saman til fundar í Sviss nú um helgina þar sem umbætur í bankakerfinu og afleiðingar evrukrísunnar verða ræddar.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS