Föstudagurinn 20. maí 2022

FBI rannsakar Murdoch-fyrirtækin

Murdoch-feðgar mæta á fund brezkrar þing­nefndar á þriðjudag


15. júlí 2011 klukkan 07:10

Wikipedia.org
Rupert Murdoch

Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur ákveðið að hefja rannsókn á ásökunum þess efnis að fjölmiðlar Ruperts Murdochs hafi hlerað síma aðstandenda fórnarlamba árásanna á turnana í New York en slíkar ásakanir hafa komið fram í brezka blaðinu Daily Mirror. Jafnframt hafa Murdoch-feðgarnir breytti fyrri ákvörðun og ákveðið að koma fyrir brezka þingnefnd á þriðjudag og svara spurningum ásamt Rebekuh Brooks, forstjóra fyrirtækis þeirra í Bretlandi.

Murdoch sjálfur segir í viðtali við Wall Street Journal (sem hann á)að það sé tómt kjaftæði að hann hafi íhugað sölu á blöðum sínum í Bretlandi og segir að Brown-hjónin (Gordon Brown sakaði Murdoch-fyrirtækin um tengsl við glæpamenn í brezka þinginu sl. þriðjudag)hafi verið vinir sínir þangað til The Sun hafi ákveðið að hætta stuðningi við Verkamannaflokkinn fyrir síðustu þingkosningar í Bretlandi.

Reuters segir að Murdoch-feðgarnir hafi breytt um afstöðu til að mæta á fundi þingnefndarinnar eftir að David Cameron hafi lýst þeirri skoðun, að þeir ættu að mæta. Formaður þingnefndarinnar hefur sagt að mæti þeir ekki mundi þingnefndin vísa málinu til brezka þingsins, sem geti kveðið á um að þeir hafi sýnt þinginu óvirðingu, sem gæti haft lagalegar afleiðingar, jafnvel fangelsisdóm.

Hluthafi í News Corporation, sem ræður yfir um 7% hlut(feðgarnir ráða um þriðjungi) segir að Rebekah Brooks verði að fara.

Þá hefur komið fram í fréttum að aðal lögregluforingi Lundúna, Paul Stephenson, hafi átt 90 mínútna fund með borgarstjóranum vegna þess, að hann hafði ráðið sem ráðgjafa sinn blaðamann, sem áður hafði starfað hjá fyrirtækjum Murdoch. Kröfur eru um að lögregluforinginn segi af sér.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS