Francoise Hollande, sem nú hefur mest fylgi þeirra, sem sækjast eftir útnefningu Sósíalistaflokksins í Frakklandi vegna forsetakosninga þar á næsta ári stendur frammi fyrir ásökunum um yfirhilmingu vegna Dominique Strauss-Khan. Fram hefur komið að frönsk blaðakona, Tristane Banon hafi kært Strauss-Khan fyrir kynferðislegt ofbeldi. Nú hefur móðir hennar, Anne Mansouret, sem gegnt hefur trúnaðarstöðum fyrir Sósíalistaflokkinn upplýst að hún hafi sagt Francoise Hollande frá þessum atburði á árinu 2003 en hann hafi hvatt til þess að málið yrði látið niður falla. Það sé skýringin á því að móðirin hafi lagt til við dóttur sína að hún kærði Strauss-Khan ekki á þeim tíma.
Jafnframt hefur Anne Mansouret staðfest að hún hafi í eitt skipti átt mök við Strauss-Khan á skrifstofu í París.
Frá þessu er sagt í Guardian í dag.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.