Miðvikudagurinn 25. maí 2022

Athugasemd frá formanni utanríkis­mála­nefndar alþingis vegna óska um nefndarfund


20. júlí 2011 klukkan 23:00

Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar alþingis, hefur 20. júlí sent Evrópuvaktinni eftirfarandi athugasemd:

Árni Þór Sigurðsson

„Ég vil að gefnu tilefni taka fram, þar sem www.evropuvaktin.is hefur verið að fjalla um ég hafi í engu svarað ítrekuðum beiðnum um fund í utanríkismálanefnd, að ég hafði enga beiðni fengið um fund í nefndinni nema frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni þann 5. júlí sl. sem ég svaraði sama dag á þann veg að ég teldi ekki að fundarefnið sem óskað var eftir að ræða kallaði á fund þá þegar. Nú hefur komið í ljós að beiðnin um fund sem vefrit[ið] … fjallar um barst fjölmiðlum strax en ekki formanni utanríkismálanefndar fyrr en með pósti síðdegis í dag [20. júlí]. Verður því svarað fljótlega. Stóryrði sem höfð hafa verið uppi í minn garð á www.evropuvaktin.is eiga því ekki við rök að styðjast og treysti ég því að þau verði dregin til baka enda [vilji ritstjórn] … væntanlega hafa það sem réttara reynist.“

Hafi Árni Þór Sigurðsson verið hafður fyrir rangri sök á Evrópuvaktinni með frásögnum um tilmæli frá þingmönnum um fund í utanríkismálanefnd alþingis eru þau ummæli dregin til baka í ljósi þess sem að ofan greinir.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS