Sjöundi landsfundur vinstri-grænna (VG) á Akureyri 28. til 30. október 2011 ályktaði ekki um nauðsyn þess að ljúka aðildarviðræðunum við ESB og leggja niðurstöðu þeirra undir dóm kjósenda. Þar með hvarf landsfundurinn frá þeirri stefnu sem flokkurinn hefur fylgt til þessa. Í ályktun landsfundarins er hvorki tekið undir kröfu Samfylkingarinnar um lyktie viðræðna við ESB fyrir þingkosningar 2013 né minnst á nauðsyn þess að þjóðin taki afstöðu til niðurstöðu viðræðna við ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu. Öll efnisatriði í ályktun landsfundarins hníga til þeirrar áttar að Íslendingar eigi ekki að gerast aðilar að ESB.
Á flokksráðfundi VG 20. nóvember 2010 var ályktað um ESB, um leið og andstaða flokksins við ESB-aðild var áréttuð, eins og gert var nú landsfundinum, sagði í þeirri ályktun: „Flokksráð ítrekar einnig mikilvægi þess að niðurstaða þess umsóknarferlis sem nú stendur yfir verði lögð í dóm þjóðarinnar. Brýnt er að í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu fari fram opin og lýðræðisleg umræða í samfélaginu um kosti og galla þeirrar niðurstöðu sem kosið verður um.“
Ekkert sambærilegt ákvæði er í ályktun landsfundarins en samkvæmt lögum VG fer hann með æðsta stefnumótunarvald innan flokksins.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.