Ný könnun meðal Austurríkismanna sýnir að 49% þeirra vilja að Grikki hverfi af evru-svæðinu. Niðurstaðan birtist laugardaginn 5. nóvember þegar Werner Faymann, kanslari Austurríkis, útilokaði ekki brottför þeirra.
Í Gallup-könnun sem gerð var á vegum blaðsins Österreich kemur fram að 36% Austurríkismanna vilja að Grikkir haldi áfram á evru-svæðinu en 10% létu ekki í ljós neina skoðun.
Þá töldu 62% að Grikkir ættu að verða gjaldþrota, 24% lýstu andstöðu við það. Þegar spurt var um evruna og Austurríki sögðust 18% vilja schillinginn að nýju.
„Hugsanlegt er að Grikkir hverfi af evru-svæðinu ef þeir fara ekki að settum skilyrðum og grípa til umbóta,“ sagði Faymann við blaðið. Hann taldi það þó ekki neitt fagnaraðefni en bætti við „að snúa aftur til gjaldmiðils eins og drökmunar yrði ekki síður erfitt fyrir Grikki en halda áfram að nota evru“.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.