Föstudagurinn 20. maí 2022

Viðskipta­ráðherra Bretlands: Fjármálageirinn uppspretta græðgi og undanskots


21. desember 2011 klukkan 10:15

Ólík sýn stjórnarflokkanna í Bretlandi á samskiptin við Evrópu blossar upp í grein eftir Vince Cable, viðskiptaráðherra Breta í Guardian í dag. Þar segir hann að margar af þeim reglum, sem Brussel vilji setja um fjármálakerfið séu nauðsynlegar en það eru einmitt þær reglur, sem Cameron var að koma í veg fyrir að næðu til Bretlands, þegar hann beitti neitunarvaldi gegn sáttmálabreytingum ESB.

Cable segir, að það sé til önnur sýn á fjármálakerfið í Bretlandi en að það sé ein af undirstöðum brezks atvinnulífs. Hún sé sú að fjármálageirinn sé undirrót fjármálalegs jafnvægisleysis, uppspretta takmarkalausrar græðgi og helzta vígi þeirra, sem skjóta sér undan því að greiða skatta. Hann bætir því við að þessi lýsing eigi þó við tiltölulega fá fjármálafyrirtæki. Viðskiptaráðherrann segir ennfremur að vandi bankakerfisins í Bretlandi sé smámál miðað við vanda evrusvæðisins og afleiðingar þess, að efnahagslegur samdráttur verði í Evrópu.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS