Ambrose Evans-Pritchard, alþjóðlegur viðskiptaritstjóri Daily Telegraph, óskar Íslandi til hamingju í blaði sínu í dag með hækkun Fitch, bandaríska matsfyrirtækisins á lánshæfi landsins og segir að skýringuna sé að finna í gengislækkun krónunnar og gjaldeyrishöftum. Hann kveðst vita að höftin séu umdeild en það sé minni háttar atriði. Ritstjórinn rekur mat OECD á efnahagsstöðu Íslands, sem spái 2,4% hagvexti í ár í framhaldi af 2,9% vexti á síðasta ári. Atvinnuleysi hafi verið 7% á síðasta ári, fari í 6,1% á þessu ári og 5,3% á næsta ári. Viðskiptahallinn hafi verið 11,2% árið 2010 en verði 3,4% í ár og hverfi á næsta ári.
Evans-Pritchard segir að gengislækkun og gjaldeyrishöft hafi bjargað efnahagskerfi Íslendinga, sem jafnframt hafi tekizt að halda velferðarkerfinu gangandi svo og samfélaginu. Á Íslandi séu að verða framfarir, þótt skuldastaða heimilanna sé erfið.
Enginn gerir kröfu til þess að löglega kjörin ríkisstjórn á Íslandi fari frá segir Evans-Pritchard. Enginn gerir kröfu til þess að teknókrati taki við sem forsætisráðherra. Samanburðurinn við hrikalegt atvinnuleysi og skuldafenið í Evrópu sé augljós.
Evans-Pritchard birtir langan kafla úr rökstuðningi Fitch fyrir hækkun lánshæfismats þar sem fram kemur að opinberar skuldir Íslands hafi numið um 100% af vergri landsframleiðslu árið 2011 en nettóskuldir 65%. Hins vegar sé mikill vandi fólginn í því að skuldir heimila séu yfir 200% af ráðstöfunartekjum og skuldir fyrirtækja 210%.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.