Umberto Bossi, leiðtogi Norðurbandalagsins á Ítalíu hefur sagt af sér í kjölfar rannsóknar, sem hafin er á meintum fjársvikum fjármálastjóra flokksins en sagt er að peningar úr flokkssjóði hafi gengið til fjölskyldu Bossi, til greiðslu á viðhaldi á fasteignum, á kostnaði við sumarleyfi og vegna fleiri útgjalda fjölskyldunnar. Bossi kveðst segja af sér til að verja sjálfan sig og fjölskyldu sína.
Norðurbandalagið var stofnað 1991 og upphafleg stefnumál þess voru sjálfstæði Norður-Ítalíu, sem flokkurinn taldi ekki eiga samleið með „spilltri“ Suður-Ítalíu. Bossi hefur lengi verið samstarfsmaður Berlusconis, fyrrum forsætisráðherra. Berlusconi segir af þessu tilefni skv. fréttum Financial Times, að þeir sem þekki til einkalífs Bossi láti sér ekki til hugar koma að nokkuð sé hæft í þessum ásökunum.
Í ítölskum fjölmiðlum hafa birtzt fréttir um tengsl Norðurbandalagsins við mafíuna, sem kemur almenningi á Ítalíu í opna skjöldu vegna baráttu flokksins gegn mafíunni.
FT segir að Berlusconi hafi borgað skuldir Norðurbandalagsins fyrir nokkrum árum. Bossi er 70 ára að aldri. Hann hefur verið lykilmaður í ítölskum stjórnmálum og afsögn hans er því talin geta haft mikil áhrif. Flokkur hans hefur verið í andstöðu við ríkisstjórn Mario Monti.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.