Mánudagurinn 27. júní 2022

AGS fær aukið fé-ræður nú yfir meira en 1 trilljón dollara


21. apríl 2012 klukkan 08:54

Alþjóða gjaldeyrissjóðnum tókst í gær að ná saman 430 milljörðum dollara í nýju fé, sem þýðir að sjóðurinn hefur yfir að ráða samtals yfir einni trilljón dollara, þegar teknir eru með þeir fjármunir, sem sjóðurinn ræður nú þegar yfir. Meginástæðan fyrir þessari fjársöfnun AGS er vandi evrusvæðisins. Mikilvægt er talið að sjóðurinn geti komið til skjalanna, ef stærri efnahagskerfi innan evrusvæðsins eins og Spánn og Ítalía þurfa á aðstoð að halda.

Bandaríkin og Kanada taka ekki þátt í þessari nýju fjármögnun. Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði fyrir skömmu að Evrópuríkin gætu lagt meira af mörkum en þau hafa gert. Vitað er að Bandaríkjaþing hefði ekki samþykkt frekari fjárveitingar til sjóðsins. Kanadamenn hafa sagt það sama, að Evrópuríkin þurfi að leggja meira af mörkum sjálf. Hins vegar hafa rísandi efnahagsveldi á borð við svokölluð BRICS-ríki, þ.e. Brasilía, Rússland, Indland, Kína og Suður-Afríka lofað meiri peningum en með skilyrðum um aukin áhrif þeirra innan AGS. Evrópuríkin hafa lengi verið áhrifamikil innan AGS en Margrét Vestager, efnahagsráðherra Dana segir að þau muni gefa eftir tvö af sætum sínum í stjórn sjóðsins síðar á þessu ári.

Framlög til AGS hafa lengi verið umdeild í Bretlandi. Samt hafa Bretar lofað að leggja fram 10 milljarða punda til viðbótar við 40 milljarða punda, sem þeir hafa áður lagt fram til sjóðsins. Þessi upphæð, 10 milljarðar punda, þýðir, að ríkisstjórnin þarf ekki að leggja málið fyrir brezka þingið til samþykktar.

Frá þessu segja Reuters og BBC í morgun.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS