Miðvikudagurinn 25. maí 2022

Spánn: Hörð átök á símafundi ráðherra um aðild AGS

Niðurstaðan sú að AGS leggur ekki fram peninga en fylgist með umbótum í bankakerfinu


10. júní 2012 klukkan 09:37

Hörð átök urðu á símafundi fjármálaráðherra evruríkjanna í gær, laugardag, um aðild Alþjóða gjaldeyrissjóðsins að björgunaraðgerðum við spænska banka. Niðurstaðan varð sú, að AGS leggur ekki fram neina peninga en samþykkt að AGS mundi fylgjast með framkvæmd umbóta í spænska bankakerfinu og að stofnanir ESB mundu fylgjast með því að Spánn standi við gefin fyrirheit í efnahagsmálum almennt. Frá þessu segir Reuters-fréttastofan. Það var markmið spænsku ríkisstjórnarinnar að halda aðkomu AGS í lágmarki.

Á fundinum voru líka deilur um hvaðan peningarnir ættu að kom. Finnar sögðu að ef peningarnir kæmu frá EFSF, sem er hinn tímabundni neyðarsjóður ESB yðu þeir að fá tryggingar fyrir sínum hlut. Sömu kröfur gerðu þeir gagnvart Grikkjum. Heimildarmenn Reuters innan ESB segja að þar á bæ sé vilji fyrir því að peningarnir komi frá ESM, sem er hinn varanlegi neyðarsjóður ESB, sem tekur til starfa í júlí. Ástæðan er sú að þar dugar 90% samþykki til að lán sé veitt.

Spánn hefur þegar lagt 15 milljarða evra í að bjarga litlum sparisóðum víðs vegar um landið. Bankia, annar stærsti bankinn,sem þarf á að halda 23,5 milljörðum evra varð til með sameiningu sjö sparisjóða.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS