Laugardagurinn 28. maí 2022

Hreyfing Beppe Grillo með 16-20% fylgi á Ítalíu

Getur orðið næst stærsti stjórnmála­flokkur Ítalíu á eftir flokki Berlusconis


31. júlí 2012 klukkan 09:09

Í borginni Parma á Norður-Ítalíu tók nýr meirihluti við í borgarstjórn sl. vor eftir mikinn kosningasigur. Hinn nýi borgarstjóri hjólar í vinnuna í stað þess að aka um í límúsínu. Hann er fulltrúi Fimm stjörnu hreyfingar grínistans Beppe Grillo, sem skoðanakannanir benda til að geti orðið næst stærsti stjórnmálaflokkur á Ítalíu í næstu kosningum, með 16-20% atkvæða, næst á eftir Frelsisflokki Berlusconis, sem mælist nú með um 26% fylgi.

Í bréfi til Financial Times segir Grillo að anda hreyfingarinnar megi lýsa með tveimur orðum: Gagnsæi og þátttöku. FT segir að Grillo hafi náð að opna æð óánægju og nái til kjósenda bæði til hægri og vinstri. Hreyfing Grillos berst gegn sameiningu Evrópu og gegn evrunni.

FT telur að andstæðurnar í evrópskum stjórnmálum kunni að vera að breytast frá hinni hefðbundnu skiptingu í vinstri og hægri í nýja skiptingu á milli þeirra, sem vilja sameinaða Evrópu og hinna, sem vilja það ekki.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS