Laugardagurinn 28. maí 2022

Sunday Telegraph: Færri en 100 þorskar eldri en 13 ára í öllum Norðursjónum


16. september 2012 klukkan 09:46

Úrtak af lönduðum fiski í evrópskum höfnum bendir til þess að ekki einn einasti þorskur, eldri en 13 ára hafi veiðst í Norðursjó á síðasta ári. Þessar niðurstöður hafa vakið áhyggjur um stöðu þorskstofnsins á þessu svæði þar sem þorskurinn getur lifað í allt að 25 ár. Þetta bendi til hnignunar stofnsins. Frá þessu segir í Sunday Telegraph í dag. Vísindamaður,sem blaðið talar við segir að mikil veiði þýði að fáir fiskar verði eldri en fjögurra ára.

Í Norðursjó eru talin vera 65300 tonn af þorski sem er þriggja ára og eldri en árið 1971 var um að ræða 276 þúsund tonn á sambærilegu aldursskeiði.

Einn vísindamanna segir að þeir meti það svo að á árinu 2011 hafi verið um 600 þorskar á aldrinum 12-13 ára í Norðursjó og af þeim hafi 200 verið veiddir. Rannsóknir bendi til að það séu færri en 100 þorskar eldri en 13 ára í öllum Norðursjónum. Vísindamenn hvetja til að kvótinn verði lækkaður í 25600 tonn á næsta ári en hann er nú 32 þúsund tonn. Hann var um 360 þúsund tonn á áttunda áratug síðustu aldar.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS