Kristian Thuelsen Dahl, hefur nú tekið við af Piu Kjærsgaard, sem formaður Danska Þjóðarflokksins. Í fyrstu ræðu sinni lagði hann áherzlu á að breyta þyrfti innflytjendapólitíkinni í Danmörku, Hann vill takmarka fjölda innflytjenda frá öðrum löndum en vestrænum og taka upp aftur svokallað punktakerfi. Hann vil setja meiri kraft í að senda innflytjendur til baka til heimalands síns og segir þá muni komast betur af á heimaslóðum. Hann vill fækka miðstöðvum fyrir hælisleitendur en auka aðstoð við flóttamenn í þeirra eigin löndum. Þá hvetur hann til þess að sá matur sem er á boðstólum í opinberum stofnunum m.a. skólum endurspegli góðan danskan mat, þar á meðal svínakjöt.
Hinn nýi formaður fjallaði einnig um Evrópusambandið og sagði að Danir ættu að endurheimta sjálfsákvörðunarrétt sinn og landamærastjórn. Þá vísaði hann til umræðna í Bretlandi og sagði að ef ríkin fyrir sunnan Danmörku vildu stefna að meiri samruna gæti vel komið til greina að Danir heltust úr lestinni og tækju upp nánara samstarf við Bretland.
Þetta kemur fram í Berlingske Tidende í morgun.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.