Danir hafa farið að fordæmi Þjóðverja og hvatt fólk til að loka á Internet Explorer frá Microsoft. Óttast menn að glufa í öryggisvörnum vafrans geti opnað tölvuþrjótum leið inn í tölvur almennings og fyrirtækja.
DK-CERT í Danmörku hefur sent frá sér viðvörun um hættuna af því að brotist verði inn í tölvur gegnum glufuna í öryggisvörnunum. Í tilkynningu frá 18. september leggur DK-CERT eindregið til að menn láti hjá líða að opna Internet Explorer þar til Microsoft hafi kippt málum í lag.
Eins og sagt frá hér á Evrópuvaktinni sendi Netöryggisstofa þýska ríkisins , Bundesamt für Sicherheit in der Informationstechnik (BSI), frá sér viðvörun um hættuna hinn 17. september og hvatti netnotendur til að nýta sér annan vafra en Internet Explorer.
Glufan í öryggiskerfinu fannst í síðustu viku. Síðan hafa upplýsingar um hvernig unnt er að nýta sér hana farið ljósum logum um netheima.
Microsoft tilkynnti þriðjudaginn 18. september að fyrirtækið mundi senda frá sér uppfærslu til að loka glufunni innan fárra daga.
Í Jyllands Posten segir að áður en þessi viðvörun birtist hafi notkun á Internet Explorer verið í „frjálsu falli“. Tölfræði sem StatCounter í Danmörku hefur birt sýnir að hlutfallsleg notkun hefur fallið úr 41,89% í 32,85% frá ágúst 2011 til ágúst 2012. Á sama tíma hefur notkun á Google Chrome aukist úr 23,16% í 33,59%.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.