Föstudagurinn 20. maí 2022

Makríll til umræðu hjá ESB-ráðherrum 25. september - sagt að fyrir þann tíma verði fundað með Íslendingum


21. september 2012 klukkan 21:14
Maria Damanaki

Sjávarútvegsráðherrar ESB-ríkjanna koma saman til fundar þriðjudaginn 25. september og segir á vefsíðu Europolitics að þar muni Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri ESB, gera ráðherrunum grein fyrir stöðu makrílviðræðnanna við Íslendinga og Færeyinga en síðustu fundir um málið verði dagana fyrir ráðherrafundinn, 22. og 23.september. Hér á landi hafa stjórnvöld látið í veðri vaka að ekki yrði gengið til makrílviðræðna að nýju fyrr en í október. Árangurslaus fundur undir stjórn Damanaki var í London 3. september.

Europolitics segir að á fundinum 25. september muni ráðherrarnir láta í ljós óþolinmæði sína og hvetja Damanaki til að nýta nýju reglurnar sem heimila refsiaðgerðir gegn þriðju ríkjum sem stundi ósjálfbærar veiðar.

Reglurnar voru samþykktar í ESB-þinginu 12. september sl. en ráðherraráðið mun staðfesta þær endanlega í október. Reglurnar taka gildi þremur dögum eftir að þær birtast í Lögtíðindum ESB. Þá er þess krafist að birt sé vísindalegt álit á stöðu viðkomandi fiskstofns, í þessu tilviki makríls, áður en gripið er til refsiaðgerða.

Europolitics telur líklegt að ráðherraráðið fari þess fyrst á leit við framkvæmdastjórnina að hún beiti í fyrstu beinum hótunum.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS