Bundesbank hefur hafið mikla árás á Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og sakar sjóðinn um að dreifa út peningum eins og skæðadrífu og þar með fara út fyrir umboð sitt. Þetta kemur fram í Daily Telegraph í dag. Þessi harða gagnrýni kemur fram í mánaðarlegri skýrslu bankans, þar sem því er haldið fram að AGS sé að breytast úr tæki til að tryggja lausafjárstöðu í banka. Það sé ekki í samræmi við lög um sjóðinn og ekki í tengslum við getu hans til að meta áhættu.
Bundesbankinn segir að AGS hafi gert rétt með því að veita Grikklandi, Írlandi og Portúgal aðstoð en að slakna sé á eftirlitskerfi sjóðsins og hann geri minni kröfur nú en áður. Áhættan af lánum sé að verða yfirþyrmandi fyrir stjórnkerfi sjóðsins.
Daily Telegraph segir að skjali hafi verið lekið úr þýzka fjármálaráðuneytinu þar sem snúið sé út úr skammstöfun á heiti sjóðsins, sem á ensku er IMF og hann kallaður „Inflation Maximizing Fund“.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.