Þýski sendiherrann á Íslandi, Thomas H. Meister, gat þess sérstaklega í fjölmennri móttöku sem hann bauð til í Hörpu miðvikudaginn 3. október að þýska ríkisstjórnin hefði ekki stutt reglurnar um refisaðgerðir sem ætlunin er að beita framkvæmdastjórn ESB gegn Íslendingum og Færeyingum vegna makrílveiðanna.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra þakkaði Þjóðverjum afstöðu þeirra. Taldi hann að hana mætti rekja til þess viðhorfs sem hann mætti hjá Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands, á bókasýningunni í Frankfurt fyrir ári.
Sendiherrann, sem er nýtekinn við embætti hér, hann kom hingað frá Nýja-Sjálandi, bauð gestum í Hörpu til að fagna þjóðhatíðardegi Þýskalands sem er jafnframt minningardagur um sameiningu þýsku ríkjanna eftir hrun kommúnismans og þar með Austur-Þýskalands.
Í ár er þess jafnframt minnst að 60 ár eru liðin frá því að stofnað var til stjórnmálasambands milli Þýskalands og Íslands, það er Vestur-Þýskalands eins og þá var, 1952, en Ísland viðurkenndi ekki Austur-Þýskaland fyrr en eftir 1970, þegar vestur-þýsk stjórnvöld lögðust ekki lengur gegn slíkri viðurkenningu.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.