Föstudagurinn 20. maí 2022

Einkaþjónn páfa fundinn sekur um skjalastuld - 18 mánaða fangelsi


6. október 2012 klukkan 17:45

Paolo Gabriele, fyrrverandi einkaþjónn Benedikts XVI. páfa var fundinn sekur í dómi sem féll í Páfagarði laugardaginn 6. október. Hann var dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir að stela og leka trúnaðarskjölum páfa. Ákæruvaldið krafðist 3 ára refsingar.

Réttarsalur Páfagarðs.

Gabriele sagði dómurum þremur að „ofurást“ sín á Rómversk kaþólsku kirkjunni og páfanum hefði ráðið gjörðum sínum, hann hefði ekki stolið neinu heldur lagt sitt af mörkum til verndar kirkju og páfa með því að leka skjölunum sem hann tók ófrjálsri hendi.

Innan Páfagarðs tala menn um „fjölskyldu páfa“ og vísa þá til að innan við 10 manns hafa lykil að lyftunni að einkaíbúð páfans. Hinn 46 ára Gabriele var einn þeirra. Hann segist hafa lekið skjölunum af því að hann hafi orðið var við „hið illa og spillta hvarvetna innan kirkjunnar“ og þessu hafi verið haldið leyndu fyrir páfanum sjálfum.

Málaferlin veittu nokkra sýn í líf páfa sem ætíð hefur verið hulið leynd auk þess sem nú er skýrara í huga manna en áður að stjórnarhættir í páfagarði mótast af baktjaldamakki og illmælgi. Spjótin hafa ekki síst beinst að Tarcisio Bertone kardínála, yfirmanns stjórnsýslu Páfagarðs, sem er sakaður um spillingu og að hygla jábræðrum sínum.

Paolo Gabriele hefur farið fram á fyrirgefningu Benedikts páfa sem hann segist elska „eins og sonur“. Páfi kann að náða Gabriele. Verði hann ekki náðaður mun hann dúsa í ítölsku fangelsi.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS