Angela Merkel Þýskalandskanslari er væntanleg í opinbera heimsókn til Aþenu þriðjudaginn 9. október. Hefur aldrei verið gripið til eins mikilla öryggisráðstafana vegna komu nokkurs erlends stjórnmálamanns til landsins síðan Bill Clinton, þv. Bandaríkjaforseti, kom þangað undir lok árs 1999. Þá átti NATO aðild að stríðsátökum í fyrrverandi Júgóslavíu og gerðar voru sprengjuárásir á Serbíu vegna átakanna um Kosovo. Vakti þetta mikla reiði meðal Grikkja.
Á meðan Clinton dvaldist í Aþenu ríkti hernaðarlegt öryggisástand í borginni til að halda aftur af æstum mótmælendum. Búist menn við hinu sama nú segja þýsk blöð að ekki sé von á friðsamlegum sjónvarpsfréttamyndum frá dvöl Merkel í borginni. Á sínum tíma var 7.000 lögreglumönnum stefnt til Aþenu til að gæta Clintons. Sambærileg tala er nefnd vegna komu Merkel. Kallaðir verða til starfa lögreglumenn af öllu landinu og þeim falið að gæta þýska sendiráðsins, Goethe-Institut og annarra þýskra stofnana auk kanslarans sjálfs.
Frankfurter Allgemeine Zeitung (FAZ) segir að vinstrihreyfingin Syriza hafi boðað að leitast verði við að virkja alla sem vettlingi geta valdið og hvetja þá til að láta að sér kveða á götum úti og láta í ljós andúð sína á kanslaranum.
.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.