Christine Lagarde, forstjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, segir að óskhyggja megi ekki ráða ferðinni við lausn á vanda Grikkja og þær lausnir verði að byggjast á raunsæi. Þetta kemur fram á Reuters í dag. Lagarde hefur stytt ferð sína um Asíu og ákveðið að mæta ekki á fund ríkja í Suðaustur-Asíu í Kambódíu til þess að geta sótt fund Evruhópsins í Brussel á þriðjudag. Hún sagði við Reuters, að hún mundi hvetja til varanlegrar lausnar á vandamálum Grikkja til þess að komizt yrði hjá frekari óvissu um framtíð Grikklands. Í því felst að afskrifa meira af skuldum Grikkja.
Á ferð Lagarde um Filippseyjar og Malasíu voru aðgerðir AGS á tíma erfiðleika Asíuþjóða 1997/1998 rifjaðar upp og hún var spurð hversu einarðlega sjóðurinn væri tilbúinn til að koma fram gagnvart Evrópu og Bandaríkjunum. Hún sagði mikilvægt að jafnræði ríki í meðferð sjóðsins á málum einstakra ríkja.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.