Krafan um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Breta að Evrópusambandinu verður stöðugt háværari innan Íhaldsflokksins að því er fram kemur í Sunday Telegraph í dag. Mark Pritchard, fyrrum formaður svonefndrar 1922 nefndar innan þingflokksins skrifar grein í blaðið í dag og hvetur til þess að fram fari atkvæðagreiðsla, þar sem kjósendur verði spurðir beint hvort þeir vilji að Bretar verði áfram í ESB eða fari út. Hann vill að þessi kosning fari fram samhliða þingkosningum 2015 eða fyrr. Blaðið segir að Pritchard endurspegli skoðanir fjölda þingmanna Íhaldsflokksins í grein sinni.
David Cameron er talinn hafa unnið mikinn sigur á leiðtogafundinum fyrir helgi í Brussel, annars vegar með því að setja á dagskrá ofurlaun og hlunnindi embættismanna ESB og hins vegar með því að fá til liðs við sig í kröfugerð um niðurskurð mörg önnur ríki en fram að fundinum var hann talinn einn á báti.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.