Laugardagurinn 28. maí 2022

Grikkland: Símafundur fjármála­ráðherra evruríkja í gær-fundur í Brussel á morgun


25. nóvember 2012 klukkan 08:44

Fjármálaráðherrar evruríkjanna héldu símafund í gær, laugardag, til þess að ræða skuldavanda Grikkja fyrir formlegan fund þeirra í Brussel á morgun, mánudag. Ekathimerini segir að mikill þrýstingur verði á þá að klára málið á þeim fundi. Í frétt gríska vefmiðilsins kemur fram að Samaras, forsætisráðherra Grikklands, hafi notað tækifærið á leiðtogafundi ESB-ríkja fyrir helgi til þess að ræða málið við tólf starfsbræður sína og að hann hafi undirstrikað í þeim samtölum eins konar „Hiroshima“ afleiðingar fjármálakreppunnar á grískan almenning. Með þeirri tilvísun virðist Samaras hafa verið að jafna stöðunni í Grikklandi með óbeinum hætti við stöðuna í Japan eftir að kjarnorkusprengjum var varpað á Hiroshima.

Ekathimerini segir að Schauble, fjármálaráðherra, hafi verið tilbúinn til að falllast á vaxtalækkun til Grikkja en dregið í land eftir að samstarfsaðilar CDU, bæði systurflokkurinn CSU og FDP hafi tilkynnt Merkel að þeir mundu ekki styðja slíkar aðgerðir.

Grikkir gera sér vonir um að fá greidda 44 milljarða evra í næsta mánuði, sem eru eftirstöðvar neyðarláns, sem þeim var gefið fyrirheit um snemma á þessu ári.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS