Miðvikudagurinn 25. maí 2022

Danmörk: Vestjysk Bank tilkynnir miklar afskriftir og mikið tap


1. febrúar 2013 klukkan 09:48

Vestjysk Bank í Danmörku tilkynnti í morgun miklar afskriftir og segir Berlingske Tidende að búast megi við milljarðatapi á rekstri bankans á síðasta ári. Í tilkynningu frá bankanum til kauphallar í morgun segi að bankinn muni afskrifa sem nemur 375 milljónum danskra króna og það þýði að tap bankans verði um 1150 milljónir.

Þetta þýðir jafnframt að eigið fé bankans fer niður í 11.4% en lágmarkið er 10%. Berlingske segir að tapi bankinn 350 milljónum til viðbótar fari hann í gjaldþrot.

Í september sl. tilkynnti bankinn afskriftir upp á 600 milljónir danskra króna. Bankinn nefnir í tilkynningu sinni tvær meginástæður fyrir stöðunni, annars vegar almennt erfitt efnahagsástand sem þýði að tekjur í landbúnaði hafi dregizt saman, hins vegar veikan fasteignamarkað.

Berlingske bendir á að þessar fréttir komi í kjölfar þess að Spar Lolland hafi farið í þrot og Jyske Bank hafi yfirtekið þá stofnun fyrir nánast ekki neitt.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS