Vísindamenn telja sig hafa komizt að þeirri niðurstöðu að fyrir milljónum ára hafi risavaxin kameldýr verið á ferð á Ellesmere-eyjum, nyrzt í Kanada, undan norðvesturhorni Grænlands. Þau hafi verið forverar þeirra kameldýra sem nú eru á ferð í Sahara-eyðimörkinni. Það eru vísindamenn við háskólann í Manchester í Bretlandi, sem hafa komizt að þessari niðurstöðu og beitt til þess nýjum rannsóknaraðferðum. Þessar rannsóknir benda til að dýrin hafi verið um 30% stærri en þau sem nú þekkjast.
Frá þessu segir í brezka sunnudagsblaðinu Observer og þar kemur fram að áður hafi vísindamenn velt vöngum yfir því að ýmsir eiginleikar kameldýranna svo sem fituhnúðar og breiðir, flatir hófar og stór augu getu nýtzt jafnvel í snjó og á söndum. Á þeim tíma hafi hiti verið meiri á norðurslóðum og að dýrin kunni að hafa fært sig um set á landi milli Alaska og Rússlands og síðan yfir Asíu.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.