Írar standa frammi fyrir stórauknum vanda á þessu ári vegna skulda heimilanna að því er fram kemur í Irish Times og líkur á að bankar yfirtaki fleiri og fleiri húseignir. Um 100 þúsund heimili á Írlandi eru nú í langtíma vanskilum. Eitt af því sem bankar gera að sögn blaðsins er að breyta vaxtakjörum á fasteignalánum lántakenda, sem eru í vandræðum yfir í breytilega vexti.
Fyrir tveimur vikum tilkynntu Michael Noonan, fjármálaráðherra og Matthew Elderfield, aðstoðarbankastjóri Seðlabanka Írlands nýjar aðgerðir til að taka á skuldavanda heimilanna á Írlandi. Þrátt fyrir það segja hagsmunasamtök heimila í vanda að ekkert sé gert.
Irish Times segir að skv. þeim aðgerðum sem kynntar voru hafi Seðlabanki Írlands gert sex af 16 fjármálafyrirtækjum sem veita fasteignalán að bjóða lántakendum viðráðanlega endurskipulagningu lána. Þeir hafa tíma fram að áramótum til að standa við það. Þeir bankar sem ekki verða við þessum tilmælum fá á sig sektir.
Hins vegar hafa takmarkanir á áreiti banka gagnvart viðskiptvinum verið afnumdar en þeir máttu ekki hafa samband við viðskiptavini nema þrisvar í mánuði. Þá verða takmarkanir á nauðungarsölum afnumdar. Bankar geta breytt vaxtakjörum viðskiptavina í vanskilum ef þeir hafa boðið þeim viðunandi endurskipulagningu lána.
Ágreiningur er um hvað teljist tilboð um„viðunandi“ endurskipulagningu lána. Það hefur ekki verið skilgreint.
Af þessum sökum ríkir svartsýni meðal þeirra, sem berjast fyrir hagsmunum heimilanna þrátt fyrir aðgerðir stjórnvalda að því er fram kemur í Irish Times.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.