Mikill meirihluti Þjóðverja vill halda í evruna þrátt fyrir fjögurra ára skuldakreppu á evru-svæðinu. Stuðningur Þjóðverja við evruna hefur aukist mikið síðustu tólf mánuði og er talið að það megi rekja til góðs efnahags- og atvinnuástands í Þýsklandi.
Þýska Handelsblatt birtir þriðjudaginn 9. apríl könnun Forsa-stofnunarinnar sem sem sýnir að 69% Þjóðverja styðja evruna en aðeins 27% segjast frekar vilja þýska markið. Fyrir um það bil ári lýsti um helmingur Þjóðverja miklum áhyggjum vegna evrunnar og framtíðar hennar.
Manfred Güllner, forstjóri Forsa, segir að vafalaust hafi Þjóðverjar enn áhyggjur af evrunni og þeim mikla en ill skiljanlega vanda sem við sé glímt á evru-svæðinu en afstaða þeirra til evrunnar mótist ekki lengur af þessum áhyggjum.
Þjóðverjar láta ekki heldur hafa áhrif á sig að evran væri líklega fyrir löngu úr sögunni ef Seðlabanki Evrópu hefði ekki dælt ómældu magni af ódýrum peningum inn á markaðinn og lofað að kaupa ríkisskuldabréf af aðþrengdum aðildarríkjum evru-samstarfsins.
Heimild: DW
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.