-segir Benit Coeuré, sem sæti á í framkvæmdastjórn Seðlabanka Evrópu
Evruríkin horfast í augu við „tapaðan áratug“ (lost decade), verði ekki tekizt á við djúpstæðan vanda bankanna, segir Benit Coeuré, sem sæti á í framkvæmdastjórn Seðlabanka Evrópu. Hann segir að efnahagsreikningar banka á evrusvæðinu séu með þeim hætti að þeir geti kæft í fæðingu efnahagslega endurreisn og verði dragbítur á hagvöxt. Coeuré segir að annað hvort verði að endurreisa bankana eða loka þeim. Verði það ekki gert verði niðurstaðan áratugur stöðnunar á evrusvæðinu eins og hafi orðið í Japan á tíunda áratug síðustu aldar.
Hætta sé sú að bankar á evrusvæðinu óttist að uppfylla ekki skilyrði um eigin fé og freistist þá til þess að framlengja lán í stað þess að viðurkenna að þau séu töpuð. Þessi ótti við eiginfjárreglur banka skv. Basel leiði til þess að bankar láni ógjaldfærum lántakendum í stað þess að lána þeim sem hafi burði til að standa undir lánum. Niðurstaða Coeuré er sú að evruríkin verði að ljúka stofnun bankabandalags. Frá þessu segir í Daily Telegraph.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.