Föstudagurinn 20. maí 2022

Orkneyjar og Hjaltlandseyjar vilja meiri stjórn eigin mála


18. júlí 2013 klukkan 06:59
BBC
Kortin sína hvernig pólitíska landslagið í Skotlandi hefur breyst á milli kosninganna 2007 og 2011. Guli liturinn til hægri, litur Skoska þjóðarflokksins er yfirgnæfandi. Frjálslyndi flokkurinn (appelsínugulur) er næstum horfinn og Verkamannaflokkurinn (rauður) hefur verulega minnkað.

Orkneyjar, Hjaltlandseyjar og Vestureyjar (Western isles) vilja meiri stjórn á eigin málefnum til þess að vernda menningu þeirra og nýta sem best endurnýjanlega orkugjafa. Þeitta kemur fram í bréfi, sem sveitarstjórnir á þessum eyjum hafa sent stjórnvöldum í London og heimastjórn Skotlands.

Í bréfinu er spurt spurninga um stjórnskipulega stöðu eyjanna í ljósi umræðna í Skotlandi um sjálfstæði. Íbúar eyjanna vilja yfirráð yfir eigin landgrunni og auðlindum þess og að tekjur af því renni til eyjanna en ekki í sameiginlega sjóði Bretaveldis. Þeir vilja nýja orkutengingu við Skotland og meiri stjórn á eigin fjárhagsmálum.

Frá þessu segir í The Scotsman.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS