Miðvikudagurinn 25. maí 2022

Frakkland: Grímuklæddir bændur aka um borgir og bæi og henda 100 þúsund eggjum á dag á götur-mótmæla offramleiðslu og lágu verði

Um 350 milljónir hæna innan ESB-Bændur kvarta undan tilskipun um stærri búr


10. ágúst 2013 klukkan 10:16

Bændur í norðvestur hluta Frakklands eru byrjaðir að eyðileggja egg í stórum stíl. Um 40 eggjaframleiðendur hafa keyrt um næsta nágrenni sitt og hent um 100 þúsund eggjum á dag á götur nokkurra bæja og borga til þess að mótmæla því sem þeir telja vera óviðunandi viðskiptaumhverfi.

Mótmælendur segja að tilskipun ESB frá síðasta ári, sem fyrirskipar þeim að bæta aðbúnað hæna með því að stækka búrin, sem þær eru í hafi neytt þá til milljóna evra fjárfestinga. Á sama tíma sé ljóst að hænur í ESB-löndum, sem nú teljast vera 350 milljónir séu a.m.k. 15-20 milljónum of margar. Það hafi leitt til þess að útsöluverð sé komið niður fyrir framleiðslukostnað.

Sl. þriðjudagskvöld keyrðu grímuklæddir bændur um og sturtuðu 100 þúsund eggjum á götur Ploumagoar bæjar. Daginn eftir fékk Carhaix sams konar heimsókn. Á fimmtudag hentu þeir 100 þúsund eggjum á götuna fyrir utan skattaskrifstofuna í Morlaix. Íbúar kvarta undan óþef.

Einn framleiðandi segir við Financial Times að hann selji 100 egg fyrir 4,5 evrur, þótt framleiðslukostnaðurinn nemi 7 evrum. Þessi framleiðandi hefur yfir 100 þúsund hænum að ráða og segir að tilskipun ESB hafi kostað hann 2 milljónir evra í fjárfestingu.

Talsmaður franska landbúnaðarráðuneytisins segir að vænta megi yfirlýsingar innan tíðar.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS