Miðvikudagurinn 25. maí 2022

Ítalía: Fasteignaskattur afnuminn til að bjarga ríkis­stjórninni


29. ágúst 2013 klukkan 13:48
Enrico Letta

Samkomulag tókst miðvikudaginn 28. ágúst innan ríkisstjórnar Ítalíu um að afnema óvinsælan fasteignaskatt og draga þar með úr líkum á að stjónarsamstarfið rofni vegna þrýstings frá Silvio Berlusconi. Flokkur hans, Frelsisflokkurinn (PdL), gaf kosningaloforð um að afnema skattinn og hótaði að slíta samstarfi við Lýðræðisflokk (PD) Enricos Letta forsætisráðherra yrði það ekki framkvæmt.

„Markimiðinu náð,“ sagði Angelino Alfano, varaforsætisráðherra, innanríkisráðherra og framkvæmdastjóri PdL, á Twitter-síðu sinni eftir ríkisstjórnarfund í Róm. Berlusconi fagnaði samkomulaginu sem miklum sigri og sagði að það mundi stuðla að hagvexti. „Við höfum staðið við loforð okkar,“ sagði hann.

Á blaðamannafundi eftir ríkisstjórnarfundinn sagði Letta að fasteignaskatturinn sem kom til sögunnar í forsætisráðherratíð Marios Montis yrði afnuminn af íbúðarhúsum (ekki frístundahúsum), landi í landbúnaðarnotum og bóndabæjum.

„Við gerum þetta án þess að raska jöfnuði í ríkisfjármálum. Við munum standa við skuldbindingar okkar gagnvart ESB og halda ríkissjóðshalla undir 3% af vergri landsframleiðslu,“ sagði forsætisráðherrann.

Letta sagði að 4 milljarða evru tekjutapi í ár vegna afnáms skattsins yrði mætt með niðurskurði ríkisútgjalda og hækkun skatta á spilavíti. Forsætisráðherrann sagði að á árinu 2014 kæmi nýr „þjónustuskattur“ til að standa undir rekstri sveitarfélaga.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS