Föstudagurinn 20. maí 2022

Danmörk: Biskupar vilja að ekki sé endilega messað á sunnudögum


28. október 2013 klukkan 09:15

Nokkrir biskupar í Danmörku vilja að sunnudagsmessur verði fluttar til annars vikudags til að laga sig að nútíma fjölskyldulífi. Því er haldið fram að þetta yrði mesta breyting á kirkjuhaldi í Danmörku frá siðaskiptum.

Jyllands-Posten segir sunnudaginn 27. október að í 500 ár hafi sunnudagurinn verið dagur vikulegrar guðsþjónustu í Danmörku. Dagurinn hafi verið helgur hvíldardagur, menn hafi dregið sig í hlé áður en ný vinnuvika hefst.

Nú ætli þjóðkirkjan að losa um tökin á sunnudeginum þar sem margir biskupar hafi gefið söfnuðum leyfi til að flytja hina eiginlegu vikulegu guðsþjónustu – hámessuna – frá sunnudagsmorgni til einhvers rúmhelgs dags. Rökin eru að sé auðveldara fyrir nútíma fjölskyldur að hlusta á Guðs orð á öðrum degi en sunnudegi beri að virða það.

Sérfræðingar í kirkjusögu benda á að staða sunnudags sem helgidags megi rekja til Nýja testamentisins og sögunnar um að Jesús hafi risið upp frá dauðum á páskasunnudag. Þess vegna leggi kristnir menn einkum áherslu á sunnudag sem messudag.

„Verði guðsþjónustur futtar frá sunnudegi til annars dags er það mesta breyting í kirkjunni frá siðaskiptum,“ segir Peter Loderg, lektor í guðfræði við Árósar-háskóla. Hann telur að það færist í vöxt að flytja messur frá sunnudögum.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS