Miðvikudagurinn 25. maí 2022

Bretland: Bæjarbúar skammast sín fyrir ljót jólatré


4. desember 2013 klukkan 07:52

Íbúar í bænum Stockton á Norður-Englandi eru sannfærðir um að þar sé „ljóstasta jólatré í Bretlandi“. Þeir vísa þar til 15 feta (4,5 metra) trés sem er eins og kramarhús á hvolfi og stendur í helstu verslunargötu bæjarins.

Bæjarbúar skammast sín fyrir tréð og líkja því við hatt á trúði eða ísform á hvolfi.

Anne Chivers (64 ára), sagði við blaðamann The Daily Telegraph:

Jólatréð í Stockton

„Þetta er hryllilega ljótt. Hvernig dettur nokkrum manni í hug að setja þetta upp og halda að fólki finnist sjálfsagt og eðlilegt að kalla þessi ósköp jólatré? Ljósin eru óskapnaður, Guð minn góður. Þetta er einfaldlega bænum til skammar. Þetta er eins og kramarhús á hvolfi.“

Heimamenn hafa sett myndir af trénu á Facebook. Mark Wilson skrifaði þar: „Ég skil ekki hvers vegna þeir eyða 1000 í rakettur og nota svo gamlan trúðshatt fyrir jólatré.“ Aðrir sögðu að tréð minnti þá á indíánatjald.

Talsmaður bæjarstjórnarinnar í Stockton sagði að þeir hefðu neyðst til að grípa til þessa ráðs vegna framkvæmda í aðalgötunni. Það væri ekki rými fyrir grenitré og þess vegna hefði verið valinn sá kostur að setja þetta upp með ljósum sem líktust snjókomu.

Í bænum Cotgrave í Nottingham hótuðu íbúar að láta ekki sjá sig þegar kveikt yrði á jólatrénu, þeim þótti það svo smávaxið, það minnti bara á trjágrein. Var hafin fjársöfnun á netinu til að kaupa stærra tré en hið 2,5 metra háa tré var samt sett upp og var kveikt á því um síðustu helgi.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS