Miðvikudagurinn 25. maí 2022

Lúxemborg: Juncker hverfur úr embætti forsætis­ráðherra eftir 19 ára setu


5. desember 2013 klukkan 11:50

Xavier Bettel hefur tekið við embætti forsætisráðherra í Lúxemborg af Jean-Claude Juncker sem setið hafði lengst allra innan ESB sem forsætisráðherra, í 19 ár. Stjórnarskiptin urðu miðvikudaginn 4. desember þegar þriggja flokka stjórn með 15 ráðherrum settist að völdum.

Xavier Bettel

Jean-Claude Juncker er 58 ára þegar hann lætur af embætti forsætisráðherra. Hann var á sínum tíma einn af hvatamönnum evrunnar og gegndi formennsku í evru-ráðherrahópnum frá upphafi þar til fyrir skömmu. Hann neyddist til að rjúfa þing og boða til kosninga vegna ásakana um að hann hefði ekki haldið rétt á málum leyniþjónustu landsins.

Frjálslyndir, sósisalistar og græningjar fengu 32 þingmenn af 60 á þingi Lúxemborgar í kosningunum 20. október og standa flokkarnir þrír að baki stjórn Bettels. Flokkur Junckers, Kristilegi demókrataflokkurinn (CSV), er stærsti flokkurinn með 23 þingmenn.

Nýja ríkisstjórnin hefur boðað aðhald í ríkisfjármálum og endurbætur í skattamálum meðal annars með hækkun virðisaukaskatts. Þá ætlar hún einnig að breyta starfsemi leyniþjónustu landsins.

Frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar þar til nú hafa forsætisráðherrar Lúxemborgar jafnan komið úr röðum flokksmanna CSV fyrir utan fimm ára skeið 1974 til 1979.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS