Eru Þjóðverjar að einangrast innan ESB?
Grikkir hafa notað tækifærið nú þegar þeir hafa tekið við forsæti Evrópusambandsins í næstu sex mánuði til þess að krefjast þess að sú aðhaldspólitík, sem stjórnvöld í Berlín og Brussel hafa þvingað þá til að taka upp verði lögð af. Þetta kemur fram í brezka blaðinu Guardian. Blaðið segir að Þjóðverjar og Angela Merkel verði sífellt einangraðri í afstöðu sinni innan ESB. Yannis Stournaras, fjármálaráðherra Grikklands segir að meira aðhald komi ekki til greina.
Blaðið segir að Grikkir fái hljómgrunn fyrir þessa afstöðu sína, ekki bara í Suður-Evrópu heldur líka í Norður-Evrópu, þar sem stjórnmálaleiðtogar óttist um pólitíska framntíð sína.
Hinn heimskunni fjárfestir George Soros segir að hinn brýni vandi fjármálamarkaða sé liðinn hjá en í framtíðinni muni kreppur eiga sér pólitískar rætur. Hann telur að framundan sé stöðnunartímabil eins og varð í Japan, sem muni verða enn verra vegna deilna pólitískra forystumanna.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.