Laugardagurinn 28. maí 2022

Þáttaskil í afkomu NYT: Meiri tekjur af áskrifendum en auglýsendum


9. febrúar 2014 klukkan 12:25

Rafrænum áskrifendum að The New York Times (NYT) fjölgaði um 19% árinu. Blaðið hefur meiri tekjur af sölu áskriftar en auglýsinga. Tekjur NYT drógust saman á árinu 2013 en stefnan sem mótuð var árið 2011 um sölu áskriftar á netinu hefur sannað gildi sitt.

Reikningar NYT og hinnar alþjóðlegu útgáfu blaðsins (fyrrv. International Herald Tribune) voru birtir fimmtudaginn 6. febrúar. Þeir sýna 1,57 milljarða dollara tekjur, dálítinn samdrátt (-1,1%) og að auglýsingatekjur bera enn kreppumerki (-6,3%, alls 667 milljónir). Á hinn bóginn hafa tekjur af sölu blaðsins, prentútgáfu og rafrænnar útgáfu, aukist um 3,7% í 824 milljónir dollara.

NYT öðru stærsta blaði Bandaríkjanna (1,9 milljónir eintaka prentuð á dag), The Wall Street Journal er stærst (2,4 milljónir eintaka), hefur frá 2012 tekist snúa við hlutföllum í tekjumyndun, síðan þá eru tekjur af sölu blaðsins til lesenda meiri en af sölu til auglýsenda. Þetta stangast á við hið hefðbundna rekstrarlíkan bandarískra fjölmiðla sem löngum hafa átt afkomu sína að mestu undir tekjum af auglýsingum.

Í árslok 2013 voru rafrænir áskrifendur NYT um 760.000 og hafði fjölgað um 19% á einu ári. Af þeim sem voru 100% rafrænir á árinu 2013 hafði blaðið 149 milljónir dollara í tekjur sem er 33,5% aukning.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS