Miðvikudagurinn 25. maí 2022

DT: ESB mun vara Rússa við nýju köldu stríði

Efnahagsleg herkví gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir Rússa


17. mars 2014 klukkan 10:43

Fréttaritari Daily Telegraph í Brussel segir að Evrópusambandið muni vara Rússa við því að nýtt kalt stríð geti verið yfirvofandi innlimi þeir Krímskaga í Rússland. Utanríkisráðherrar ESB eru nú á fundi í Brussel. Blaðið byggir frétt sína á drögum, sem tekin hafa verið saman hjá Evrópusambandinu um viðbrögð, þar sem fram kemur að sú efnahagslega herkví, sem geti vofað yfir Rússum geti haft jafn alvarlegar afleiðingar fyrir þá eins og refsiaðgerðir sem settar voru á Íran höfðu fyrir Írani.

Evrópusambandið hefur tekið saman lista yfir 130 einstaklinga, þar á meðal rússneska embættismenn, þingmenn og kaupsýslumenn,sem gætu átt von á að vegabréfsáritanir þeirra verði felldar niður og eignir á Vesturlöndum frystar en talið er að mjög muni fækka á lista. En Austurríkismenn t.d. eru því andvigir að setja þekktustu viðskiptajöfra Rússa á þann lista.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS