Auðmaðurinn Andrej Kiska sem aldrei hefur haft afskipti af stjórnmálum vann yfirburðasigur á Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, í forsetakosningum í landinu laugardaginn 29. mars. Kiska fékk um 60% atkvæða en Pico 40%.
Fico (49 ára) hafði sigrað með 4% mun í fyrri umferð kosninganna en flestir þeirra 13 frambjóðenda sem náðu ekki að komast í aðra umferðina lýstu stuðningi við hinn 51 árs Kiska.
Fréttaskýrendur segja að atkvæði marga kjósenda hafi ráðist af ótta við að Smer, mið-vinstri flokkur Ficos, yrði of valdamikill næði Fico kjöri. Flokkurinn hefur meirihluta á þingi.
Verkefni forseta Slóvakíu eru einkum formleg en hann kemur þó að skipun dómara.
Kiska er talinn hafa notið þess að vera ekki beinn þátttakandi stjórnmálum. Hann hagnaðist á lánaviðskiptum, seldi fyrirtæki sitt og notaði hagnaðinn meðal annars til að styðja foreldra veikra barna.
Fico hefur sem forsætisráðgerra verið ötull við að laða erlend stórfyrirtæki til landsins eins og KIA og Volkswagen. Hann beitti sér einnig fyrir upptöku evru árið 2009. Atvinnuleysi er þó enn 13.5% í Slóvakíu.
Forystumenn jafnaðarmanna og sósíalista í Evrópu lýstu stuðningi við Fico og má þar nefna Françosi Hollande Frakklandsforseta og Martin Schulz, forseta ESB-þingsins.
Kiska lagði áherslu á að Slóvakar settu völdum Smer-flokksins skorður. „Eigi forsetinn að vera fulltrúi þjóðarinnar getur hann ekki verið einskonar framlenging eins stjórnmálaflokks,“ sagði Kiska í lokaumræðum í sjónvarpi fyrir kjördag.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.